KOMIN HEIM!!!!! Getum loksins skrifað blogg með Íslenskum stöfum:D þ,æ,ö…. jeee
Núna erum við komin heim og erum alveg að fíla það. Vorum farin að sakna margs; ættingja, vina, rúmsins okkar, mömmu matarins og vatnsins:) En það hellstust yfir okkur blendnar tilfinningar í síðustu flugvéla ferðinni, ferðin á enda komin, þetta er búin að vera frábær ferð í alla staði en nú er komið að því að við þurfum að fara heim og reyna að fullorðnast! En það verður líka gott að fá smá rútínu á lífið og fara að gera eitthvað að viti;)
Komum til London 7 maí og áttum að fljúga frá Gatwick flugvelli 8 maí kl 11.30. Sólarhringurinn okkar var alveg í rugli eftir tímamismuninn og svefnlaust 12 klst. næturflug frá LA til London. EN vindurinn þurfti endilega að vera með stæla og blés á okkur ösku þannig að fluginu okkar frá London var frestað til 9 maí. Komumst þá loksins af stað kl 14.00 eftir mikla bið. Búið að vera pínu vesen á okkur að koma bleiku Victoriu secret regnhlífini hennar Brynju gegnum tollinn í London en sem betur fer tóku bretarnir hana í sátt á endanum og trúðu því að þetta var ekkert hættulegt vopn:). Þurftum að lenda á Akureyri og var Halla svo góð að sækja okkur þangað og ágætt að sleppa við enn eina rútuferðina (búin að eyða slatta af klukkustundum í svoleiðis farartækjum undanfarna mánuði).
Erum núna komin í Ytri-Fagradal til að þefa af lömbum! og förum sennilega í höfuðborgina á miðvikudag og svo stefnum við á austurlandið fljótlega.
Heimsreisan okkar er búin að vera ólýsanlega skemmtileg lífsreynsla (mælum alveg með svona ferð fyrir hvern sem er!). Erum búin að sjá svo margt nýtt, kynnast mikið af fólki og kynnast mörgum og ólíkum menningar siðum. Erum bara frekar stolt af okkur að hafa komist heil heim þrátt fyrir smá hræðslu í byrjun við þennan stóra heim:) Erum öllu ýmsu vön núna s.s mismunandi gisti aðstöðum, ýmsum ferðamátum og allskonar öðruvísi mat. Erum orðin nokkuð sjóuð fyrir NÆSTU FERÐ. Hún verður farin! bara spurning hvenar…..
Erum mjög ánægð hvað margir hafa nennt að fylgjast með blogginu okkar en SKAMM til þeirra sem lesa bloggið og kvitta ekki;) Síðasti sjens að kvitta núna þar sem þetta er sennilega síðasta ferðabloggið okkar í bili. Hlökku til að sjá framan í ykkur öll eftir skamma stund! Hlökkum mikið til:)
P.S góðir hlutir gerast hægt og myndir úr ferðinni fara að detta inn hvað að hverju! Lofum…á facebook jafnvel
Posted in Óflokkað | 5 ummæli »